31.12.2009 | 21:19
Síðasta færsla ársins
jææja, þá ætla ég að reyna að koma með örlítið yfirlit yfir árið, ég ætla þó ekki að hafa það gríðarlega nákvæmt, stikla bara á stóru hérna :D
Janúar : langþráður draumur hófst og ég fékk HEST. En hún amma mín lánaða mér hann Hljóm.
Febrúar: Febrúar kláraðist nú bara eins og Janúar og ég gerði ekki annað en að fara uppí hesthús og vera dugleg í skólanum.
Mars: Í mars áttu 4 fjölskyldumeðlimir afmæli, og var haldið upp á það eins og vanalega. Skólin og hesthúsið áttu þó allan hug minn eins og undanfarna mánuði.
Apríl: Það gerðist ekkert merkilegt í apríl :)Nema að við Brynja skruppum í reiðtúr saman, og lékum okkur einhvað berbakt :P

Ég og Hljómsi kallin
Gamli gráni, og ég og Hljómsi
Maí: í maí tókum við amma eftir að Hljómur var farin að veigra sér að nota hægri framfótin, og ákváðum við að fara með hann til dýralæknis -sins Helga. Þetta var mín fyrsta heimsókn til Dýralæknis og ekki var hún nú góð. Því að Helgi dæmdi Hljómin minn til dauða. Hann sagði að prinsin væri alltof spattaður ( Spatt er eins og hellti hjá mannfólki) og við amma ákváðum að gefa honum sitt síðasta sumar í sveitinni.
Júní: Ég fékk lánaðan hest frá hesthúsinu við hliðiná. sem að henti mér svo bara af sér, þannig að eftir einhverja viku þá skilaði ég honum. Ég varð að fá nýjan hest, og þá fékk ég hana Dáð til prufu, það svínvirkaði allt hjá okkur þangað til að hún henti mér tví veigis af baki og prjónaði með mig. Ég tók hana þó uppí bústað og ætlaði að láta hana virka.

skjóni gamli :P 10 vetra gæðingur
Júlí: Hestarnir voru uppi sumarbústað að éta gras, og við ferðuðumst, ég og Jonni byrjuðum saman.
Ágúst: Ég, Pabbi og Mamma keyrðum í kringum landið og stoppuðum í nokkra daga hjá vinfólki okkar í skriðdalnum.Og undur og stórmerki gerðust. Fyrr á árinu sagði pabbi við mig að ég mætti auglýsa eftir hesti, ef einhver vildi skipta við mig á 2 100 króka veiðilínum, og fékk ég e-mail frá manni sem vildi skipta við mig á linunum og vetur gömlum brúnskjóttum hesti. Við slógum til og Tjaldur frá Laxárnesi var fyrsti keypti hesturinn. Kormákur sonur Jonna fæddist. Og við keyptum annan hest Milla frá Klettholt. 13 vetra meri sem átti að verða reiðhesturinn minn.
Tjaldur sem folald.

Tjaldur litli prins komin í sveitasæluna.

í heilum dal, gat ég labbað uppað 1 vetra ótömdum fola og klappað honum, þvílíkt gæðablóð sem ég á.
September: Ég gafst upp á Dáð, og við Jonni fengum okkur litla skvísu, Siberian Husky skvísuna Spörtu. Hún er yndisleg í alla staði.
Október: Við Jonni hættum saman og ég fékk Spörtu.
Nóvember:Það var lítið að gerast í Nóvember, ég lifði bara lífinu, fór í skólan og hugsaði um Spörtu mína.
Desember: Hestarnir voru teknir inná hús, og eftir sem leið á Desember var tekin sú ákvörðun að Milla mundi verða seld. Ég ætla að taka bílpróf fyrir peninginn sem fæst fyrir hana, og fæ eflaust lánaðan reiðhest frá vini frænda míns.
Svo endaði ég árið með frábærum degi, ég og Sparta fórum að hitta fleiri husky hunda og eigendur þeirra. Hittumst í hádeginu á Reykjavíkurtjörn, og ullum mikilli gleði viðstaddra, vorum umtöluð af hlaupurum og túristar fengu að setjast á sleðana og vera dregnir tjörnina þvera og endilanga. Sparta steig sín fyrstu spor í Björkis dráttarbeisli, og dró sleðan hennar Kollu með Blanco frænda og Uglu. Svo dró hún með Jaka stíkasleða. Og Svo með Jaka, Castró og Frosta pabba.
Takk fyrir árið sem leið, og vona að við eigum eftir að eiga góðar stundir á nýju ári.
Áramótakveðja. Alexandra Björg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.11.2009 | 23:55
2 mánuðir...
Í dag er mjöööög merkur dagur, já því að í dag hef ég átt hana Sparthildi í 2 mánuði...
Litla rúsínan mín er náttúrulega fallegust og þegar ég fékk hana var hún í kringum 5-6 kg en í dag eru hún á milli 13 og 14 kg... litla feitabollan mín :D
litla sæta stelpan mín 10 daga :D
hérna er hún 11 vikna, og nýkomin til mín


Þessar eru svo teknar í dag, svona í tilefni dagsins :D
Við fórum líka á hvolpahitting í dag, og hittum Eros, Lunu og Öskju sem eru öll systkini og eru mánuði yngri en Sparta, en henni fannst samt ótrúlega gaman að leika við þau. Svo er hún bara eiginlega búin að vera sofandi í allan dag, því að hún sefur ef hún er þreytt og hún er alltaf þreytt :/ sérstaklega eftir svona hittinga, því hún hleypur svo ótrúlega mikið.

svo ákvað Sparta að syngja aðeins fyrir Katrínu systur sem var að passa hana.
það eru komnar fullt af myndum inná síðuna hennar Spörtu www.sparta.dyraland.is munið að kvitta fyrir komu ykkar þar :D
-alvitra og sparthildur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2009 | 23:41
bleh
sjúbbidú, ég á að vera læra, en ég nenni því ekki.. ætla frekar að blogga...
Það sem er að frétta af mér er..
*skólin er alveg crazy, svo mikið að gera, ég lærði allt sunnudagskvöldið fyrir Ensku próf, lærði allt mánudagskvöldið fyrir munnlegt ensku próf og orðaforða próf í ensku, sem ég btw, þarf að ná 9,5 í annars næ ég ekki símati og þarf að taka lokapróf 10 des. Sem ég nenni ekki. Og ég fór í prófið í dag, og ég held að ég hafi verið að fá svona 9.. :/ tvennt sem ég svaraði ekki, hvað í fokkanum þýðir longevity... það var ekki einu sinni í bókinni og ekki í hand-outinu.. er sko smá pirruð:P Og svo mundi ég ekki neitt orð sem kemur af rótinni Phil, en Phil er gríska orðið yfir love... en auðvitað átti ég að skrifa philosophy.. en ég klikkaði á því, þannig að allavegana 2 villur.
* Það gengur rosalega vel með Sparthildi, við erum á námskeiði í Hundalíf, og það er rosalega skemmtilegt, erum með Jaka og Sisku systkinum Spörtu. Og Sparta er búin að læra alveg helling...
- sestu
- sæl
- gemmér five
- NEI
- niður
- fram(er að ná því)
- komdu
- veifa(svona næstum því)
Þetta er frekar góður árangur fyrir 4 mánaða hvolp :)
*www.sparta.dyraland.is já að sjálfsögðu fær skvísan heimasíðu, þarna eru aðalega myndir :)
en ég ætla að fara lesa svolítið fyrir söguprófið og fara svo að sofa.. ætla bara að sætta mig við að fá í kringum 8. en ekki 10. fæ bara 10 á næsta söguprófi :P
túrílú - Alvitra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2009 | 00:38
nýr fjölskyldumeðlimur
Voðalega gaman að kíkja á síðuna mína, líður alltaf svona mánuður á milli blogga :P ég verð að fara herða mig í þessu :P
Allavegana af mér er margt að frétta, það er búið að draga undan hestunum og þeir eru komnir í haga, Milla gerði sér nú lítið fyrir og prjónaði og var ómöguleg á meðan dragningin stóð yfir. Svo tek ég hana inn í hús í desember, það verður spennandi.
Svo er búið að bætast fjölskyldumeðlimur í fjölskylduna, en ég og Jonni fengum okkur husky hvolp, hún heitir Sparta og er sætust í HEIMINUM :D Ef fólk er að velta sér uppúr því afhverju hún heiti Sparta, þá er það nú bara útaf því að ég er að læra sögu í skólanum og Sparta er borg í Grikklandi. Ekki flóknara en það, en nafnið fer henni vel.
Svo er Arna Björk stóra systir orðin ólétt, og fyrsta barnabarn mömmu og pabba er að koma :D ég er ýkt spennt að vera stóra frænka, enda er ég litla barnið í fjölskyldunni. En það verður ótrúlega gaman. Þó svo að krakkaskrípið búi á Selfossi :/
Ég og Jonni erum að fara á sunnudagin á hvolpahitting með Spörtu, það verður ábyggilega ótrúlega gaman, að hitta öll systkini hennar og eigendur þeirra :P
en þetta er nóg í bili
-alexandra hundóða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2009 | 23:16
Milla frá Klettholti :D
JÆJA.. það má segja að bloggið hefur verið í sumarfríi, en nú er skólin að byrja, þannig að sumarið hlýtur að vera klárast, því miður, en það sést nú greinilega á veðrinu, þar sem að það er ekki sól og heiðskírt enþá, meira svona þung rigningarský og leiðindar rok.
Þjálfunin á Emil gengur ágætlega, en hann tók uppá því að vilja ekkert hlaupa fallega, meira svona hoppa og skoppa og þefa af öllu. Og sýningin er um helgina :/ þannig að hann fær auka æfingu á morgun og svo reynum við okkar besta.
Ég ákvað að fara að prufa hest á Stokkseyri, og með mér í lið Lísu skvísu úr heshúsinu. Og við skellum okkur 16 ágúst. og okkur leist svona svakalega vel á hana að við hefðum bara viljað leggja út fyrir henni á staðnum og fara með hana heim :)
En svo þegar ég kem heim og segi foreldrum mínum frá ævintýri dagsins þá sýnast þau bara als ekkert alltof áhugasöm.. (gæti verið því ég hef bara talað um hesta í sumar) . En svo 17 ágúst fæ ég sms um að fleiri eru áhugasamir um merina. Þannig að mamma hringir í pabba og pabbi segir að við ætlum bara að kaupa hana, og mamma hringir í konuna og segir að við komum og sækjum hana á eftir. Og konan segir okei, svo komum við og ég fæ að prófa hana aftur, gekk mjög vel og fór í smá reiðtúr með bóndanum. Sem gekk vel þannig að við tökum hana með okkur í bæin, og keyrum hana uppi kjós og setjum hana í hagan hjá hinum hestunum.
Svo kíki ég 19 ágúst með ömmu á hana og við gefum hestunum brauð en náðum ekki að klappa henni þar sem að hún er rosalega stygg í girðingu. En við látum gott heita og eldum pulsur og étum.
Svo ákveðum við Lísa að fara í reiðtúr í dag, prófa gripin aftur, en hvað haldiði, við eyddum ábyggilega svona hálftíma ef ekki meira að reyna að króa hana af, klappa henni og gefa henni brauð, náðum henni næstum því 2 en allt kemur fyrir ekki. Þannig að við gáfumst upp eftir mjög heiðarlega tilraun.
Þannig að núna á ég 2 hesta, Tjaldið og Milluna :D
Svo er skólin að byrja, ég er á félagsfræði braut. Ég fékk bara 16 einingar sem mér finnst eingan vegin nóg ef ég ætla að útskrifast á þessu ár þúsindi þannig að ég fór í töflubreytingar og bað um að fá ensku 303 líka, þá verð ég í 19 einingum og ætla að reyna að fá mætingareiningnuna. Þá mundi ég fá 20 einingar.. sem væri awesome :D
-alexandra alvitra
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.7.2009 | 13:22
...
jæja.. núna er frekar langt síðan ég bloggaði :P
annars er mjög lítið að frétta af mér.. eða já kannski smá samt :P
ég er hætt við að kaupa Dáð, hún hentaði mér bara ekki.. þannig að leitin endalausa heldur áfram af hinum fullkomna hesti.. en ég á náttúrulega litla Tjaldið mitt enþá :D
svo er annar draumur að rætast hjá mér.. draumur sem ég var eiginlega bara búin að gefa upp bátin.. en Hrönn bað mig um að sýna Emil litla á hundasýningu..en hann er 4 og hálfsmánaða amerískur cocker spaniel... og er sætastur í geiminum :D við fórum á fyrstu æfinguna okkar í gær og það gekk rosa vel.. svo ætlum við bara að vera dugleg að æfa okkur líka heima :D
en svo er sumarfríið bara að verða búið :/
og ég hef ekkert meira að segja í bili þannig að--
-alvitra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2009 | 22:18
Get, ætla og skal...
jæja núna er svolítið langt síðan síðast
en það sem er að frétta af mér er að Hljómur er orðin spattaður og þar með dottin úr umferð:/ og hann er ábyggilega mest dekraðasti hestur í heimi, honum er bara kembt og gefið nammi, enda er hann orðin algjör bolla núna, ætla samt að skella mér bara berbakt á hann á morgun og feta smá, svo að ég meiði hann ekki, en leyfa honum aðeins að finna fyrir knapa aftur.
Svo er Tjaldur litli bara komin inná dal að jafna sig eftir að klippt var undan honum.. þannig að hann er í góðu yfirlæti að éta gras.
Svo er lítil prinsessa komin til mín líka :D en það er rauðblesótt 16 vetra meri sem heitir Dáð.
Hún er nú þegar búin að henda mér af sér 2.. í sama reiðtúrnum en ég harkaði það bara af mér og státa af miklum marbletti á handleggnum. en ég fór á hana í gær og það gekk ágætlega, og fór í dag og það gekk betur en í gær, þannig að þetta kemur með kaldavatninu.. svo ætla ég ein á morgun og píska hana vel áfram.. og reyna að fá hana til að slaaaaaaaaaka á... :P
Þessi gæða gripur kann að prjóna eftir pöntun og ríður þangað sem þú stýrir henni ;), sem sagt yfir fjöll og firnindi, og tré og trégreinar og trjádrumba(lenti í því um dagin)..
en ég hef engar áhyggjur þetta mun verða mitt reiðhross, sama hvað gerist.. þá er allt hægt ef viljin er fyrir hendi ! og svo ætla ég að nota eitt gott mottó sem ég lærði í grunnskóla en það er GÆS.. GET, ÆTLA OG SKAL...
en þetta er nóg í bili..
skelli inn myndum af stóðinu mínu bráðum :D
-alvitra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2009 | 16:40
Tjaldur frá Laxárnesi
Nýr fjölskyldumeðlimur...
já ég var að eignast hest.. ársgamall, svakalega myndarlegur og gæfur.
Var að skoða hann áðan og ég get ekki hætt að brosa.
Tók nokkrar myndir af honum en get ekki sett þær inn en ég fann nokkrar á netinu sem ég set bara í staðin :D
Hérna er ein þegar hann var folald.
| ||||||||||||||||||||
Svakalega sætur og flottur finnst ykkur ekki :D
Ég er allavegana alsæl með þennan grip :D
Og ég er bara að pæla að leyfa honum að heita Tjaldur.. ég allavega finn ekki neitt betra á hann.. ef þið hafið einhverjar hugmyndir:D
-alexandra hestastelpa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2009 | 22:42
Eurovision 2. sæti :D
jibbí.. við lentum í öðru sæti .. sem er frábært árangur..
en ég og katrin vorum annars búnar að finna mjög góða lausn til að halda keppnina ef við hefðum unnið..
Við hefðum einfaldlega leigt stóran trukk.. til að hafa svona trukkasvið. Fara svo uppi sveit á einhvað risastórt tún.. og bara láta allan mannskaran hanga á túninu.. ég meina veðrið var mjög gott.. og það er bjart á þessum tíma :P :D:D
annars er að frétta af mér að ég er búin að fá flestar einkunnirnar mínar.. vantar bara að fá út úr öðrum íslensku áfangum og dönsku og UTN.. voðalega spennandi
-alexandra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2009 | 23:46
Eurovision 2009
Jæja hvað er uppáhaldið mitt?
jú það er Eurovision.. ég er aðeins of mikið frík sko.
hehe.. allavega þriðjudagin var. var ég i Hafnarfirði og horfði á Eurovision með Elvu og Atla.
Sem var gaman, ég held með Svíþjóð... elska þetta lag.. ég meina hvernig er annað hægt:D
Ópera og svona í þessu... Malena Ernman er einhver besta messó sópranó söngkona Svía.. og hún skilar þessu bara mjög vel :D
Svo eru finnar líka með nokkuð gott lag.. mér allavega finnst það skemmtilegt..
En Íslendingar vinna samt :P hehe eða ég vona það.. ég vona að við verðum allavega í topp 10..
ég held að fólk sé aðeins of bjartsýnt um topp 5.. ég meina við höfum aldrei átt mörg nágrannalönd.. og ísland er gjörsamlega á hausnum.. með alla Icesave reikninga og blablabla.. ekki veit ég mikið um þessa kreppu en samt.. Topp 10 og þá verð ég mjöööög ánægð.
Svo er Noregur líka frekar sigurstranglegt land... en ég skil samt ekki hvaða svaka hrifningu allir hafa á þessum strák.. með ótrúlega kjánalegt bros eins og barnsrass í framan með fiðluna sína og svo eru alltaf hárin á fiðluspjótinu(hvað sem þetta heitir) alltaf slitnir.
Ég hata danska lagið.. bara útaf þessi Brinck vann Heru Björk.. sem var með mikið betra lag..
sko Hera er mikið betri.. :P
en já.. svo er aðal keppnin núna á laugardaginn.. og hún meira að segja rétt eftir 4 held ég :P
þá eru fullt af eldri eurovision lögum og svo byrjar keppnin kl 7 :D:D
vá hvað það verður mikill sófa dagur hjá mér..
verð að vakna snemma og fara uppí hesthús og svo kl 4 tekur sófin og eurovision við :P
en ég hef ekki meira að segja..
-alvitra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)




















